Skilmálar
Skilmálar
Þessi skildmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu EMAMI til netenda. Skilmálinn er staðfestur með kaupum í netverslun EMAMI. Skilmálinn er einungis fáanlegur á Íslensku. Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um saningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Skilgreiningar Seljandi er Emami ehf, Strandgötu 29, 220 Hafnarfirði, kt: 670207-0990, vsk númer XXXX Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 18 ára til að mega versla á www.emami.is
Pantanir og afhending vöru Pantanir eru teknar til samdægurs eða daginn eftir að pöntun er lögð inn netverslun emami.is Ef að vara er ekki til á lager höfum við samband við kaupanda.
Íslandspóstur sér um að koma sendingunni á pósthús nálægt heimili kaupanda. Eftir að Íslandspóstur tekur við pakka úr netverslun EMAMI líða að jafnaði 1-3 virkir dagar þar til kaupandi fær tilkynningu um að hann eigi pakka á næsta pósthúsi. Sendingarkostnaður er 950 kr nema annað sé tekið fram.
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar varðandi rétta notkun og umhirðu keyptri vöru við afhendingu, s.s. þvottaleiðbeiningar.
Ef upp koma einhver vandamál varðandi sendingu er hægt að hafa samband við okkur hér.
Skilaréttur og ábyrgð Almennur skilaréttur á vörum seljenda er 14 dagar nema annað sé tekið sérstaklega fram. Gegn framvísun reiknings er hægt að skila vöru og fá inneignarnótu sem gildir bæði í netverslun Emami og í verslunum okkar á Laugavegi og í Kringlunni. ATH: Til að hægt sé að skipta vöru þurfa allir merkimiðar að vera enn á vörunni og hún óþvegin og ónotuð.
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Hægt er að tilkynna galla munnlega en æskilegt er að gera það skriflega (t.d. í tölvupósti) sakir skráningargildis. við mælum jafnframt með því að kaupandi geymi afrit af senda skeytinu
Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ef söluhlut er ætlaður verulega lengri líftími en almennt gerist þá er frestur til að kvarta 5 ár. Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.
Athugið að ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits fatnaðar vegna notkunar og þvottar, þ.e.a.s. hún nær ekki til þeirra vara sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Ábyrgðin fellur einni niður ef rekja má galla til rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að kynna sér leiðbeiningar varðandi rétta meðhöndlun.
Greiðslur Einungis er hægt að kaupa með greiðslukorti en allar færslur fara í gegnum örugga greiðslugátt frá Korta.is
Persónuvernd Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðar mál og þeim aldrei dreift eða seldar til 3ja aðila. Þessi vefur kann að nota kökur til upplýsingaöflunar og skráir hugsanlega IP tölur ásamt tíma og dagsetningum. Þessar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að greina og skrá umferð, greina hvað er vinsælt og til að gera okkur betur kleift að gera upplifun kaupenda sem allra besta. Athugið að IP tölur eru ekki tengdar við neinar persónuupplýsingar.
Hafðu samband Ef upp koma einhver vandamál varði vöru eða þjónustu frá okkur hafðu þá samband við okkur hér.
Nýlegar fréttir
Site news
|
